Atli Már Ingólfsson, Eiríkur Gunnsteinsson, Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir og Sigurður Jónsson stofnuðu Land Lögmenn árið 2012.
Saman búum við yfir víðtækri þekkingu og langri reynslu af innlendum og erlendum lögmannsstörfum, einkum á sviði alþjóðlegra fjárfestinga, viðskipta, fríverslunarsamninga og verslunar. Við höfum unnið fyrir einstaklinga, opinberar stofnanir, fyrirtæki, banka, fjárfestingarfyrirtæki og alþjóðastofnanir. Markmið Land Lögmanna er að sníða lausnir að þörfum viðskiptavina, til að ná árangri í þeirra þágu.