STARFSREYNSLA

2020-
Land Lögmenn. Sjálfstætt starfandi lögmaður.

2006- 2020
OPUS lögmenn. Stofnandi og eigandi.

2003- 2006
Fulltingi lögfræðiþjónusta.

2003
Sýslumaðurinn á Húsavík.

2001- 2002
Sýslumaðurinn í Reykjavík (starfsnám).

MENNTUN

2012
Hæstaréttarlögmannsréttindi.

2005
Héraðsdómslögmannsréttindi.

2001- 2002
Skiptinemi, Katholieke Universiteit Leuven, Belgíu. Mannréttindi, Evrópuréttur og refsiréttur.

1998- 2003
Cand. juris, Háskóli Íslands.

KENNSLA OG RITSTÖRF

2006- 2007
Prófdómari og leiðbeinandi með ritgerðum við Háskólann á Bifröst.

2004
Hugtakið markaðsráðandi staða í samkeppnisrétti. Úlfljótur 1. tbl. 57. árg. 2004.

FÉLAGS- OG TRÚNAÐARSTÖRF

2002- 2003
Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators, félags laganema við Háskóla Íslands.

2000- 2010
Stofnandi og stjórnarmaður í Knattspyrnufélaginu Elliða.

SÉRHÆFING:

Oddgeir hefur í tæpa tvo áratugi flutt hundruði mála á öllum dómstigum hér á landi og einnig fyrir EFTA-dómstólnum í Luxemborg. Hann hefur komið að málum einstaklinga sem og fyrirtækja. Meðal annars gætti hann hagsmuna eins olíufélaganna í olíusamráðsmálinu svokallaða og skaðabótamálum tengdu því árin 2003-2006. Þá var hann lögmaður Bank of Tokyo í Hæstaréttarmáli nr. 17/2013 þar sem viðurkennd var krafa upp á 50 milljónir bandaríkjadala úr hendi Kaupþings banka. Árið 2017 skipaði Hæstiréttur Íslands Oddgeir verjanda Sævars Marinó Ciesielski í endurupptökumáli Hæstaréttar nr. 521/2017 þar sem skjólstæðingur hans var sýknaður. Eftir breytta dómstólaskipan 1. janúar 2018 hafa umbjóðendur Oddgeirs í barnverndarmálum tvívegis fengið dóma héraðsdóms og Landsréttar ómerkta í Hæstarétti, sbr. mál nr. 26/2018 og 49/2019.

Helstu svið Oddgeirs:

Fjölskylduréttur: skilnaðarmál, forsjármál og barnaverndarmál.
Sakamál: verjendastörf og réttargæsla brotaþola.
Skaðabótamál: bótamál vegna þvingunarráðstafanna lögreglu á borð við handtöku, líkamsleit og húsleit og aðgerða barnaverndaryfirvalda á borð við vistun utan heimilis.
Annað: skiptaréttur, samkeppnisréttur, samningaréttur.

TUNGUMÁL:

Enska og danska.