Fjölskyldu- og erfðaréttur
Við aðstoðum hjón, sambúðarfólk og tilvonandi hjón við alla samningagerð og höfum langa reynslu af gerð kaupmála, eigna- og skiptasamninga. Eins aðstoðum við fólk við að ljúka fjárskiptum.
LAND lögmenn taka að sér hvers kyns málefni tengd erfðarétti og skipti dánarbúa, hvort heldur um er að ræða einkaskipti dánarbúa eða opinber skipti á dánarbúum. Lögmenn stofunnar hafa yfirgripsmikla þekkingu á ágreiningsefnum sem upp kunna að koma við skipti dánarbúa.
Erfðamál verða flóknari eftir því sem fjölskyldumynstur verða fjölbreytilegri og því er skynsamlegt að gera ráðstafanir í tengslum við erfðamálefni. T.d. ef hjón eiga ekki sameiginlega niðja geta þau gert með sér erfðaskrá sem kveður á um rétt til setu í óskiptu búi. Ef engin erfðaskrá er gerð, geta stjúpniðjar krafist skipta á dánarbúi og maki á þá ekki rétt á setu í óskiptu búi.
LAND lögmenn annast um gerð erfðaskrá en erfðaskrár eru formbundnir skriflegir gerningar um hinsta vilja arfláta. Erfðaskrá getur verið metin ógild ef ekki er vandað til verka og skjalið fullnægir ekki öllum formkröfum sem gerðar eru til erfðaskráa.
Þarftu aðstoð í fjölskyldu- eða erfðaréttarmáli?
Hafðu samband við okkur í dag og við munum hjálpa þér í gegnum ferlið.
